Forsíða Prenta Veftré Leita


Vertu til
Vertu til er vorið kallar á þig,
Vertu tilað leggja hönd á plóg.
Komdu út því að sólskinið vill sjá þig,
Sveifla haka og rækta nýjan skó
Sveifla haka og rækta nýjan skó – hei !

Með sól í hjarta
Með sól í hjarta og söng á vörum
við setjumst niður í grænni laut,
Í lágu kjarri við kveikjum eldinn,
kakó hitum og eldum graut.

Vorvindar glaðir
Vorvindar glaðir, glettnir og hraðir,
geysast um löndin létt eins og börn.
Lækirnir skoppa, hjala og hoppa
hvíld er þeim nóg í sæ eða tjörn.
:,: Hjartað mitt litla hlustaðu á.
Hóar nú smalinn brúninni frá.
Fossbúinn kveður, kætir og gleður,
frjálst er í fjalladal :,:


Þú sólargeisli
Þú sólargeisli sem gægist inn
og glaður skýst inn um gluggann minn.
Mig langar svo til að líkjast þér
og ljósi varpa á hvern sem er.


Sól skín á mig
Sólin er risin, sumar í blænum
sveitirnar klæðast nú feldinum grænum.
Ómar allt lífið af ylríkum söng
unaðsbjörtu dagrin löng.

Sól, sól skín á mig.
Ský, ský burt með þig.
gott er í sólinn
að gleðja sig.
Sól, sól skín á mig.

Óskasteinar
Fann ég á fjalli fallega steina,
faldi þá alla, vildi þeim leyna.
Huldi þar í hellisskúta heillasteina
alla mína unaðslegu óskasteina.
 
Langt er nú síðan leit ég þá steina
lengur ei man ég óskina neina
er þeir skyldu uppfylla um ævidaga
ekki frá því skýrir þessi litla saga.
 
Gersemar mínar græt ég ei lengur
geti þær fundið telpa eða drengur.
Silfurskæra kristalla með grænu og gráu
gullna roðasteina rennda fjólubláu. 
 

Uppi´ á grænum, grænum, himinháum hól
Uppi´ á grænum, grænum, himinháum hól
sá ég hérahjónin ganga.
Hann með trommu, bom, bom, bombo-rombom-bom,
hún með fiðlu sér við vanga.
Þá læddist að þeim  ljótur byssukarl
hann miðaði í hvelli,
en hann hitt bara trommuna sem small
og þau hlupu´ og héldu velli.
  

Hann sigldi út um höfin blá í sautján ár
Hann sigldi út um höfin blá í sautján ár
og sjómennsku kunni hann upp á hár
Hann saknaði alla tíð stúlkunnar
og mynd hennar stöðugt í hjarta hann bar
 
Ó María mig langar heim –
ó María mig langar heim
Því heima vil ég helst vera –
ó María hjá þér

Í höfnum var hann hrókur mikils fagnaðar      
hann heillaði þar allar stúlkurnar                       
En aldrei hann meyjarnar augum leit
það átt' ekki við hann að rjúfa sín heit

Ó María mig langar heim.....

Svo kom að því hann vildi halda heim á leið
til hennar sem sat þar og beið og beið
Hann hætti til sjós tók sinn hatt og staf
og heimleiðis sigldi um ólgandi haf

Ó María mig langar heim....    

En fleyið bar hann aldrei heim að fjarðarströnd
hann ferðast ei meira um ókunn lönd
En María bíður og bíður enn
hún bíður og vonar hann komi nú senn
 
Ó María mig langar heim –
ó María mig langar heim
Því heima vil ég helst vera –
ó María hjá þér


Lína langsokkur
Hér skal nú glens og gaman
við getum spjallað saman.
gáum hvað þú getur,
vinur, gettu hver ég er.
Verðlaun þér ég veiti
ef veistu hvað ég heiti.
vaðir þú í villu,
þetta vil ég segja þér.

Hér sérðu Línu langsokk
tralla hopp, tralla hei,
tralla hopp sa-sa.
já, líttu, það er ég.

Svo þú sérð minn apa,
minn sæta, fína, litla apa,
herrann Níels heitir,
já, hann heitir reyndar það.
Hérna höll mín gnæfir,
við himin töfraborg mín gnæfir,
fannstu annan fegri
eða frægðarmeiri stað?

Hér sérðu Línu langsokk...

Þú höll ei hefur slíka,
ég á hest og rottu líka.
Og kúffullan af krónum
einnig kistil á ég mér.
veri allir vinir,
velkomnir, einnig hinir.
nú lifað skal og leikið,
þá skal lífí tuskum hér.
hér sérðu Línu langsokk...

Ég er gula blómið fína
Ég er gula blómið fína
Blómið fína
Gulu blöðin vil ég sýna
Vil ég sýna
Kátir krakkar klöppum saman
Klöppum saman
Ofsalega er nú gaman, er nú gaman.
Tra la la la la...
Einnig er sungið um bláa, rauða osfrv.

Vorlag
Sólin skín og skellihlær
Við skulum syngja lag
Vetur karlinn var í gær
En vorið komí dag.
Fallerí, fallera....
En vorið kom í dag.

Olli Ormur
Olli ormur fór á kreik
upp úr moldu kíkti
æstur vildi´í einhver leik
ánægður hann skríkti


Lítil mús
Lítil mús, lítil mús lítil húsamús.
Lítil mús, lítil mús lítil hagamús.
Hvað gerir músin nú?
Hún flýr í bóndans bú!


Tröllalagið
Hátt upp í fjöllunum
Þar búa tröllin,
Tröllapabbi, tröllamamma og
Litli trölli – rölli.
Hó! Sagði tröllapabbi
Hó! Sagði tröllamamma
En hann litli tröllirölli segir bara Hó!

Bangímon
Sit ég hér á grænni grein
og geri fátt eitt annað
en eta hunang, borða ber
því bíta allt er bannað.
Dropar detta stórir hér,
Dropar detta hvað finnst þér?
Dropar detta allt í kring og
Dinga linga ling.

Vatnið vex nú ótt og títt,
Ég verð að flýja úr húsum.
Hér sit ég í alla nótt
Og borða úr mínum krúsum.
Dropar detta ofan í poll,
Dropar dett á minn koll,
Dropar detta allt í kring
Og dinga-linga ling


Enn logar sólin á Súlnatindi,
og senn fer nóttin um dalsins kinn,
og skuggar lengjast og skátinn þreytist
hann skríður sæll í pokann sinn.

Og skáta dreymir í værðarvoðum
um varðeld kakó og nýjan dag.
af háum hrotum þá titra tjöldin,
í takti einmitt við þetta lag.

Söngvasveinar
Við erum söngvasveinar á leiðinni
út í lönd.
Við erum söngvasveinar á leiðinni
út í lönd.
Við leikum á flautu, skógarhorn og skóarhorn, leikum á flautu, fiðlu og skógarhorn.
Við skulum dansa hopp sa sa, hopp sa sa, hopp sa sa.  Við skulum dansa hopp sa sa, hopp sa sa.

Við erum góð
Við erum góð, góð hvort við annað
stríðum ekki eða meiðum neinn.
Þegar við grátum huggar okkur einhver,
þerrar tár og klappar okkar kinn.

Disneylag
Það er gott að vera
þar sem gleðin býr
þar gerast sögur og ævintýr.
Það er veröldin okkar sem
laðar og lokkar
svo ljúf og hýr.

Lítil heimur ljúfur, hýr,
lítill heimur ljúfur, hýr
lítill heimur ljúfur, hýr
Eins og ævintýr.


Hjallatún
Einn, tveir, þrír, fjór´
allir krakkar syngja í kór.
Fimm, sex, sjö, átta
nú er gaman.

Bomm, bomm, bomm.
Klappa hönd (klapp, klapp, klapp)
Stappa fót (stapp, stapp, stapp)
Smella góm (smell, smell, smell)
Komið hér allir meeeeeeeeeeeeeð
(Allir saman nú)
Áfram Hjallatún
Áfram Hjallatún (x3)
Áfram Hjallatún
HJALLATÚN !

Ein stutt, ein löng
Ein stutt, ein löng, hringur á stöng
og flokkur sem spilaði og söng.

Köttur og mús og sætt lítið hús,
sætt lítið hús og köttur og mús.
Ein stutt ein löng, hringur á stöng
og flokkur, sem spilaði og söng.

Penni og gat og fata sem lak
fata sem lak og penni og gat.
Ein stutt ein löng, hringur á stöng
og flokkur sem spilaði og söng.

Lítill og mjór og feitur og stór,
feitur og stór og lítill og mjór.
Ein stutt, ein löng, hringur á stöng
og flokkur sem spilaði og söng.


Fimmeyringurinn
Ef að nú hjá pabba einn fimmeyring ég fengi, fjarskalega hrifin og glöð ég yrði þá.  
Ég klappa skyldi pabba og kyssti vel og lengi  kaupa síðan allt sem mig langar til að fá.

Fyrst kaupi ég mér brúðu, sem leggur aftur augun, og arbandsúrið fína af fallegustu gerð.
Og af því hvað hún mamma er orðin þreytt á
taugum, þá ætla ég að kaupa bíl í hverja sendiferð.

Hjólhest og járnbraut ég ætla að gefa Geira,
gríðarstóra flugvél og kaupi fyrir Finn,
svo kaupi ég mér döðlur og súkkulaði og fleira,
og síðan skal ég gefa pabba allan afganginn.

Stígur hún við stokkinn
Stígur hún við stokkinn,
stuttan á hún sokkinn,
ljósan ber hún lokkinn,
litli telpuhnokkinn.

Stígur, stígur, stígur hann,
stígur hann með snilli.
Fjórar hefur hann fjalirnar
fótanna á milli.

Dropalagið
Dr, dr, dr, dr, segja droparnir við pollinn.
Dr, dr, dr, dr, segja droparnir við pollinn.
Og þeir stinga sér í kaf
og breyta pollinumí haf.

Gulur, rauður
Gulur, rauður, grænn og blár
svartur, hvítur, fjólublár.
Brúnn og bleikur banani,
appelsína talandi.
Gulur, rauður, grænn og blár,
svartur, hvítur,  fjólublár.

Syngjandi geng ég allsstaðar
Viðlag:
Syngjandi hér, syngjandi þar
syngjandi geng ég allsstaðar
Sí og æ
Æ og sí
Aldrei fæ ég nóg af því.

Forsöngvarinn:
Einu sinni ég átti kú
Börnin:
Einu sinni ég átti kú.
Forsöngvarinn:
Hún sagði ekki mö, heldur ba,ba,bú.
já, býsna skrýtin var kýrin sú.

Ég átti hrút og hann var grár.
Ég átti hrút og hann var grár.
      Svo skipt´ann um lit og eftir ár
      hann orðinn var næstum því
      Fjólublár.

Ég átti líka hund sem oft svaf fast.
Ég átti líka hund sem oft svaf fast.
Og þegar rigndi og það var hvasst,
þá fékk hann alltaf gigtarkast.

Ég átti fugl sem í búri bjó.
Ég átti fugl sem í búri bjó.
Hann aldrei söng, jafnvel ekki þó
að undir væri leikið á píanó.

Ég átti kött sem var klókur og vís.
Ég átti kött sem var klókur og vís.
Hann var andvígur því að eltast við  mýs, en át bara kökur og rjómaís.

      

Ef þú ert súr
Ef þú ert súr vertu þá sætur
sjáðu í speglinum hvernig þú lætur
ekkert er varið í sút eða seyru
teygð´u á þér munnvikin út undir eyru.

Viðlag
Galdurinn er að geta brosað
geta í hláturböndin tosað
geta hoppað, hlegið, sungið endalaust.

Ef þú ert fýldur þá líkist þú apa
eða krókódíl sem er of fúll til að gapa
ekkert er varið í sút eða seyru
teygð´u á þér munnvikin út undir eyru.

Viðlag
Ef þú ert illur þá líkist þú nauti
eða eldgömlum potti með viðbrenndum grauti
ekkert er varið í sút eða seyru
teygð´u á þér munnvikin út undir eyru.
Viðlag

Haustvísa
Hvert er horfið laufið
sem var grænt í gær?
Þótt ég um það spyrji
verð ég engu nær.
Blöðin grænu hafa vistnað,
orðin gul og rauð.
Ef ég horfi miklu lengur
verður hríslan auð.

Krummi krunkar úti
Krummi krunkar úti, kallar á nafna sinn.
Ég fann höfuð af hrúti, hrygg og gæruskinn
Komdu nú og kroppaðu með mér,
krummi nafni minn.
Komdu nú og kroppaðu með mér,
krummi nafni minn.


Svefn sígur á hali
Svefn sígur á hali
svefn er runninn á dali.
Hann lokar augum barnanna
og leiðir þau upp til stjarnanna.
Og þar í draumalandi,
liggja skeljar í sandi
kuðungar, perlur og hörpuskel
og allt sem börnin óska sér.

Sex litlar endur þekki ég
Sex litlar endur þekki ég
fimm eru mjóar og ein er sver.
Ein þeirra vaggar og sperrir stél
fremst í flokki og segir kvakk,kvakk,kvakk.

Niður að sjónum vilja þær
vagga velta, vagga velta til og frá.
Ein þeirra vaggar og sperrir stél,
fremst í flokki og segir kvakk,kvakk,kvakk.

Ég heiti Keli, káti karl
Ég heiti Keli, káti karl
Og kraftajötunn er.
Þegar ég fér út, út
hrökkva allir í kút, kút.
Ég heiti Keli, káti karl.
Tra-la-la-la-la-la-la-la

Kolakassinn
Siggi datt o´ní  kolakassann,
hæ-fadderí,fadderall, la la.
Gunna átti hann að passa,
hæ-fadderí, fadderall, la, la.
Ef að Lúlli vissi það,
þá yrði Jóna steinhissa.
Hæ-fadderí, hæ-faddera,
hæ-fadderí, fadderall, la,la.


Hreppstjórinn snarpi
Hreppstjórinn snarpi
hleypir á Jarpi,
frúin sat á Bleik,
hún var svo spengileg og keik,
á eftir kom Rósa
á honum Mósa
síðast sá ég prest
sitja haltan hest.
:,: En hann litli Sveinn
söðul á ei neinn
á lágum vagni lestina rekur :,:

Kubba og byggingalagið
Kubbahús við byggjum brátt,
báðum lófum smellum hátt.
Kubbum röðum sitt á hvað,
hver vill skemma það
( bomm klappa fast).

Fyrsta, önnur, þriðja, fjórða,
svona stórt er húsið mitt.
Fyrsta, önnur, þriðja, fjórða,
svona stórt er húsið mitt.

Við reisum okkur húsin há,
hlý og fögur að líta á.
Og þegar öllu lokið er,
ykkur býð ég heim með mér.

Reyklagið
Við ýtum reyknum út
og við togum reykinn inn
Og reykurinn fer upp um skorsteininn
syngjum glorí, glorí hallelúja,
og reykurinn fer upp um skorsteininn.



Langt fyrir utan
Langt fyrir utan ystu skóga,
árið sem að gullið fannst.
Einn bjó smiður útí móa
og hans dóttir sem þú manst.

Litla smáin, lofi fáin,
lipurtáin gleðinnar.
Ertu dáinn útí bláinn,
eins og þráin sem ég bar.
(Lag: O, my darling Clementine ).

Mér finnst gott að borða
Mér finnst gott að borða
blómkálssúpu og brauð
hamborgara, kjúklinga og súkkulaðifrauð.
Fisk og gos og franskar
finnst mér gott að fá
og flatköku með miklu smjöri og hangikjöti á
:,: Fisk og franskar finnst mér gott að fá
og flatköku með miklu smjöri og hangkjöti á :,:

Inga dansar á pallinum
Inga dansar á pallinum
og Stína skellihlær.
Eva er á sokkunum
og Maja datt í gær.
Íris keyrir kassabíl
með Olgu í
og Kristín kastar bolta
til Hallfríðar.

Norðanvindur
Nú er úti norðanvindur
nú er hvítur Esjutindur.
Ef ég ætti úti kindur
þá myndi ég láta þær allar inn.
Elsku besti vinurinn
Úmbarassa....

Hérna koma nokkur risatröll
Hérna koma nokkur risa tröll,
hó! hó!
Þau öskra svo það heyrist út um fjöll hó! hó!
Þau þramma yfir þúfurnar, svo fljúga burtu dúfurnar, en bak við
ský var sólin hlý í leyni, hún skín á tröll þá verða þau að steini!

Þorraþrællinn
Nú er frost á Fróni,
frýs í æðum blóð,
kveður kuldaljóð
Kári í jötunmóð.
Yfir laxalóni liggur klakaþil,
Hlær við hríðarbyl
hamragil.
Mararbára blá brotnar
þung og há,
unnar steinum á
yggld og grett á brá.
Yfir aflatjóni æðrast skipstjórinn.
Harmar hlutinn sinn
hásetinn.

Tunglið, tunglið taktu mig
Tunglið, tunglið taktu mig,
og berðu mig upp til skýja.
Þar situr hún móðir mín
og syngur lofgjörð nýja.

Til veiga
:/: Til veiga :/:
vjer vekjum séhvern mann!
kominn er illviðra kóngurinn Þorri
kaldur og sárreiður ættjörðu vorri.
:/: Með blóti :/:
vjer blíðka skulum hann.

:/: Hann situr :/:
á svelli lögðum stól.
Nær sem hann hnerrar hretin dynja,
hósti hann fold og jöklar stynja.
:/: Í kvefi :/:
er karlinn mesta fól.

:/: Hann gægist :/:
með grettum frónið á:
“Ég sver það að ef nú enginn blótar,
aðfarir skal ég þá hafa  hér ljótar.
:/: Því toddý :/:
án tafar vil ég fá.”

Tilfinningablús
Ég finn það ofan í maga o-ho
Ég finn það niður í fætur o-ho
Ég finn það fram í hendur o-ho
Ég finn það upp í höfuð o-ho
Ég finn það hér og hér og hér
og hér og hér og hér og hér
hvað ég glöð (reið/leið/þreytt/hress)
hér inni í mér.


Allir hafa eitthvað til að ganga á
Allir hafa eitthvað til að ganga á
Teygðu fram löppina og
lof mér að sjá.

Fíllinn hefur feitar tær,
ljónið hefur loppur tvær,
músin hefur margar smáar,
en ormurinn hefur ansi fáar.
Allir hafa eitthvað til að.

fiskurinn hefur fína ugga,
flóðhesturinn engan skugga
krókódíllinn kjaftinn ljóta,
sá er nú klár að láta sig fljóta.
Allir hafa eitthvað til að.

Á vængjunum fljúga fuglarnir,
á fótunum ganga trúðarnir,
á hnúunum hendast aparnir,
á rassinum leppalúðarnir.
Allir hafa eitthvað til að .

Ís og snjór
Ís og snjór, ég er stór
þýt ég um  á þotunni,
þeysist eftir götunni
æ, ég fór of hratt,
 xx (smella 2x í góm)
flatur datt, búmmmmmm.


Á Sprengisandi
Ríðum, ríðum rekum yfir sandinn,
rennur sól á bak við Arnarfell.
Hér á reiki er margur óhreinn andinn, úr því fer að skyggja á jökulsvell.
:/:Drottinn leiði drösulinn minn
drjúgur verður síðasti áfanginn.:/:

Þei! þei! þei! þei! þaut í holti tófa,
þurran vill hún blóði væta góm,
eða líka einhver var að hóa
undarlega digrum karlaróm.
:/:Útilegumenn í Ódáðahraun
eru kannski að smala fé á laun. :/:

Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn,
rökkrið er að síga á Herðubreið.
álfadrottning er að beisla gandinn,
ekki er gott að verða á hennar leið.
:/:Vænsta klárinn vildi ég gefa til
að vera kominn ofan í Kiðagil.:/:

Krummavísur
Krummi svaf í klettagjá
kaldri vetrarnóttu á
:/: verður margt að meini:/:
Fyrr en dagur fagur rann
freðið nefið dregur hann
:/:undan stórum steini.:/:




Vorið er komið
Vorið er komið og grundirnar gróa
gilin og lækirnir fossa af brún.
Syngur í runni og senn kemur lóa,
svanur á tjarnir og þröstur í tún;

Nú tekur hýrna um hólma og sker,
hreiðrar sig blikinn og æðurinn fer

hæðirnar brosa og hlíðarnar dala,
hóar þar smali og rekur á ból.
Lömbin sér una um blómgaða bala,
börnin sér leika að skeljum á hól.
Á barnadaginn
Sumardaginn fyrsta
var mér gefin kista,
styttuband og klútur,
mosóttur hrútur.

Drippedí-dripp, droppedí-dropp
Drippedí-dripp, droppedí-dropp
drippedí, drippedí, droppedí-dropp.
Drippedí-dripp, droppedí-dropp
drippedí, drippedí, droppedí-dropp.

Rigning hér og rigning þar
já, rigningin er alls staðar
en sama er mér og
sama er þér
við sullum og bullum hér.

Drippedí-dripp, droppedí-dropp.

Allir krakkar á kreik
Allir krakkar á kreik
komi strax út í leik
því að vorið og sólskinið kallar.
Leika fjörugt og létt
eins og lömbin á sprett
út um ljómandi byggðirnar allar.


Berrössuð á tánum
Sumarið er komið , sælt og blítt;
við sitjum hér úti á túni.
Fuglarnir kvaka og flest er nýtt
og fáni er dreginn að húni.

Við eru berrössuð, berrössuð
berrössuð á tánum
hópur af kátum krökkum
sem kunna´ að leika sér.

Margt er nú skrítið og moldin blaut
er mjúk eins og deig ípakka.
Nú baka ég köku og bý til graut
og býð þér svo kannski að smakka.

Við erum berrössuð.

Palli var einn í heiminum
Ég þekki lítinn labbakút
sem langaði til að stelast út.
Á litlu tánum læddist einn
en langaði ekki að vekja neinn.
:;: A,ha,ha trúðu mér
Palli var einn í heimi hér :;:

Út á götu æddi hann
en ekki nokkurn þar hann fann.
suður í búð hann síðan gekk
og súkkulaðimola hann fékk.
:;: A,ha,ha trúðu mér
Palli var einn í heimi hér :;:



Einbúinn
Ég bý í sveit,
á sauðfé á beit
og sællegar kýr út á túni.
Sumarsól heit
senn vermir nú reit
en samt má ég bíða eftir frúnni.

Traktorinn minn,
reiðhesturinn,
hundur ogvdálítið af hænum.
Kraftaverk eitt
til oss gæti leitt
hýrlega mey burt út úr bænum

Þeir segja mér að
þeysa af stað,
þær bíði eftir bóndanum vænum.
Ég hef reynt, það veit guð,
en það er sko puð
að þræða öll húsin í bænum.

Litla flugan
Lækur tifar létt um máða steina.
Lítil fjóla grær við skriðufót.
bláskel liggur brotin milli hleina.
Í bænum hvílir íturvaxin snót.
Ef ég væri orðin lítil fluga,
ég inn um gluggann þreytti flugið mitt.
og þó ég ei til annars mætti duga,
:;: ég eflaust gæti kitlað nefið þitt:;:


Lagið um það sem er bannað
Það má ekki pissa bak við hurð
og ekki henda grjóti oní skurð.
Ekki fara í bæinn
og kaupa popp og tyggjó
og ekki nota skrúfjárn fyrir sleikjó.

Það má ekki vaða út í sjó
og ekki fylla húfuna af snjó.
Ekki tína blómin
sem eru útí´ beði
og ekki segja “ráddi” heldur réði.

Þetta fullorðna fólk er svo skrýtið
það er alltaf að skamma mann.
Þó maður geri ekki neitt,
það er alltaf að skamma mann.

Það má ekki skoða lítinn kall
og ekki gefa ketti drullumall,
ekki skjóta pabba
með byssunni frá ömmu
og ekki tína orma handa mömmu.

Það má ekki hjóla inn í búð
og ekki gefa litla bróður snúð,
ekki fara´ að hlæja
þó einhver sé að detta
- ekki gera hitt og ekki þetta.

Þetta fullorðna fólk er svo skrítið.



Litla músin
Litla músin labbar af stað
í loðnum feld í skólann
já bara, veistu hvað
mamma hennar sagði: mundu að
vera góð
og músasiði alla læra stillt og hljóð.

Léttfætt sú litla labbar af stað
en stóra músin góða, vefur inn í blað voða gott nesti, vænan mjólkurost
það veitir ekki af
því að bráðum kemur frost.

Hér búálfur á bænum er
Hér búálfur á bænum er á bjálkalofti dimmunni í,
Hér búálfur á bænum er á
bjálkaloftinu.
Hann stappar fótum hoppar hátt og haframjölið étur hrátt.
Hér búálfur á bænum er á bjálkaloftinu.

Ef þig langar að syngja
Ef þig langar að syngja þinn söng,
er söngvastundin að renna upp núna.
Enginn syngur þann söng í þinn stað .
Á morgun er orðið til söngs of seint,
við syrgjum þau ljóð sem í þögnina dóu.
Svo settu nú ekki þinn söng á frest,
heldur syngdu hann nú! það er best.


Við eigum hvor annan að
Við eigum hvor annan að
eins og skefti og blað
í lífsins skúraveðri.
Hanski og hönd,
hafið og strönd
við eigum samleið ég og þú
eins og vind´ og vindubrú.

Andlit og nef,
nefið og kvef.
Við hnerrum hjartanlega.
Allt gengur vel
ef þú átt vinarþel.

Stundum fellur regnið strítt.
( stundum andar golan blítt).
Öðrum stundum allt er hvítt.
( En svo verður aftur hlýtt ).
Sumir kvarta sí og æ
( Svoleiðis ég skelli hlæ ).
Já, allt gengur miklu betur í vetur,
ef þú getur kæst með mér kömpunum í.

Það verður bjart yfir borg
bros um öll torg.
Við syngjum sólarsöngva.
Snúðu á hæl,
með þessu mælum við.
:,: Því ekkert jafnast á við það
að eiga góðan vin í stað.
Að standa tveir í hverri raun
eru vináttulaun:,:


Barnagælur
Kristín litla, komdu hér
með kalda fingur þína.
Ég skal bráðum bjóða þér
báða lófa mína.

Eitthvað tvennt á hné ég hef,
heitir annað Stína.
Hún er að láta lítið bréf
í litlu nösina sína.

Fuglinn segir bí bí bí,
bí bí segir Stína.
Kveldúlfur er kominn í
kerlinguna mína.

Þulur
Stígur hún við stokkinn,
stuttan á hún sokkinn,
ljósan ber hún lokkinn,
litli telpuhnokkinn.

Stígur hann Lalli
langt inn á palli.
fjórar hefur hann fjalirnar
fótanna á milli.
stígur hann með snilli.

Lati Geir
Lati Geir á lækjarbakka
lá þar til hann dó.
Vildi hann ekki vatnið smakka,
var hann þyrstur þó.

Krummi svaf í klettagjá
Krummi svaf í klettagjá
kaldri vetrarnóttu á
:/: verður margt að meini:/:
Fyrr en dagur fagur rann
freðið nefið dregur hann
:/:undan stórum steini.:/:

Á sér krummi ýfði stél,
einnig brýndi gogginn vel
:,: flaug úr fjallagjótum, :,:
lítur yfir byggð og bú,
á bæjum fyrr en vakna hjú,
:,: veifar vængjum skjótum.

Sálaður á síðu lá
sauður feitur garði hjá
:,: fyrrum frár á velli.:,:
Krunk krunk, nafnar komið hér
krunk krunk, því oss búin er
:,: krás á köldu svelli.:,:

Frost er úti
Frost er úti fuglinn minn,
ég finn hvað þér er kalt.
Nærðu engu í nefið þitt
því nú er frosið allt.
En ef þú bíður augnablik
ég ætla´ að flýta mér
og biðja´ hana mömmu mína
um mylsnu handa þér.



Mánuðirnir
Janúar kemur með kulda og snjá.
Febrúar málar frostrós á skjá.
Mars okkur þreytir hans þung eru spor.
Apríl er betri hann boðar oss vor.
Maí gefur lömbunum lífgrös og skjól.
Júni er hreykinn með hágengna sól.
Júlí er bestur, ég bið um hann strax.
Ágúst hann bíður oss ber sín og lax.
September roðnar með réttir og glaum.
Október sefur við saknaðardraum.
Nóvember skipar í skólann á ról.
Desember gefur hin dýrlegu jól.

Tvær litlar mýs
Tvær litlar mýs, stukku út á ís
polli volli, dúllí volli dei.
Ísinn var þunnur
og önnur hét Unnur.
polli volli, dúllí volli dei
polli dei, polli dei,
polli volli, dúlli volli dei.
Ísinn sprakk og Unnur datt
polli volli, dúlli volli dei.

Einu sinni var
Einu sinn var karl og kerling
í koti sínu.
Þau áttu sér kálf,
nú er sagan hálf.
Hann stökk út um víðan völl,
og nú er sagan öll.



Amma og draugarnir  
Hún amma mín gamla
lá úti í gljúfri.
Dimmt var það gljúfur
og draugalegt mjög.
Viðlag:
En amma mín mælti,
og útaf hún hallaði sér:
Ég læt engan svipta mig svefni í nótt ; sama hver draugurinn er.
Kom þar hún Skotta
með skotthúfu ljóta.
Tönnum hún gnísti,
glotti og hló.
Viðlag
Kom hann þar Móri
á mórauðri treyju,
ofan sitt höfuð
af hálsinum tók.
Viðlag
Kom þar hann Glámur
með glyrnurnar rauðar.
Kurteislegt ekki
var augnaráð hans
Viðlag
Kom þar einn boli,
kenndur við Þorgeir,
æstur  í skapi og öskraði hátt.
Viðlag
Loks kom hann afi
að leita að ömmu.
“Æ ertu hér,” sagði´ hann,
“elskan mín góð.”  
Viðlag                                     

Hann Tumi fer á fætur
Hann Tumi fer á fætur
við fyrsta hanagal
að sitja yfir ánum
lengst inni í Fagradal.

Hann lætur hugann líða svo langt um dal og fjöll,
því kóngur vill hann verða
í voða stórri höll.

Og Snati hans er hirðfífl
og hrútur ráðgjafinn,
og smalahóll er höllin.
En hvar er drottningin?

Mér kalt er á tánum
Mér kalt er á tánum,
ég segi það satt.
Ég er skólaus og skjálfandi
og hef engan hatt.

Það snjóaði í morgun,
það snjóaði í dag.
ég er hreint alveg ráðalaus,
en hvað um það?

:;:Ég syng mína vísu
um snjóinn og mig,
tral, ra, la, la, la, la.
um snjóinn og mig:;:



Vorljóð
Með vindinum þjóta skúraský,
Drýpur drop, drop,drop,
Drýpur drop, drop, drop.
Og droparnir hníga og detta á ný,
Drúpur drop,drop,drop,
Drýpur drop, drop,drop.

Nú smáblómin vakna eftir vetrarblund,
drýpur drop,drop,drop,
drýpur drop,drop,drop.
Þau augun sín opna, er grænkar grund
drýpur drop,drop,drop,
drýpur drop, drop, drop.

Krumminn í hlíðinni
Krumminn í hlíðinni hann fór að slá,
Þá kom lóa lipur tá og fór að raka ljá.
Hann gaf henni hnappa þrjá
og bannaði henni að segja frá
en hann spói spíssnefur
hann sagði frá, prakkarinn sá.
Þó var ljárinn ekki nema
hálft annað puntstrá.
Lóan er komin
Lóan er komin að kveða burt snjóinn.
Að kveða burt leiðindin, það getur hún.
Hún hefur sagt mér að senn komi spóinn, sólskin í dali og blómstur í tún.
Hún hefur sagt mér til syndanna minna, ég sofi of mikið og vinni ekki hót, hún hefur sagt mér að vaka og vinna og vonglaður taka nú sumrinu mót

Maístjarnan
Ó hve létt er þitt skóhljóð
og hve lengi ég beið þín,
það er vorhret á glugga,
napur vindur sem hvín,
en ég veit eina stjörnu,
eina stjörnu sem skín,
og nú loks ertu komin ,
þú ert komin til mín.

Það eru erfiðir tímar,
það er atvinnuþref,
ég hef ekkert að bjóða,
ekki ögn sem ég gef,
nema von mína og líf mitt
hvort ég vaki´ eða sef,
þetta eitt sem þú gafst mér
það er allt sem ég hef.



Sól skín fossa
Sól skín á fossa ,
segir hún Krossa.
Hvar á að tjalda?
segir hún Skjalda.
,,Suður við ána“
segir hún Grána.
,,Ég skal snjónum spyrna“
segir hún Hyrna.
,,Ég skal éta í mína hít“
segir hún Hvít.
,,Ég skal mjólka minna“
segir hún Dimma.
,,Ég skal standa innar“
segir hún Kinna.
,,Ég skal mjólka svo freyði“
segir hún Reyður.
,,Mér þykir góður ruddi“
segir hann tuddi.
,,Ég skal éta sem ég þoli“
segir hann boli.
,,Ég skal éta sjálfur“
segir hann kálfur.
,,Ég þoli illa hungur“
segir vetrungur.

Víkivakar
Sunnan yfir sæinn breiða
sumarylinn vindar leiða.
Draumalandið himinheiða
hlær- og opnar skautið sitt.
Vorið kemur, heimur hlýnar,
hjartað mitt.

Gakk þú út í græna lundinn,
gáðu fram á bláu sundin.
Mundu, að það er stutt hver stundin,
stopult jarðneskt yndi þitt.
Vorið kemur, heimur hlýnar,
hjartað mitt.

Allt hið liðna er ljúft að geyma,
-láta sig í vöku dreyma.
Sólskinsdögun síst má gleyma,
-segðu engum manni hitt!
Vorið kemur, heimur hlýnar,
hjartað mitt.

Sumarkveðja
Ó blessuð vertu sumarsól,
er sveipar gulli dal og hól
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðarvötnin blá.
Nú fossar, lækir,unnir, ár
sér una við þitt gyllta hár.
Nú fellur heitur haddur þinn
um hvíta jökulkinn.

Þú klæðir allt í gull og glans,
þú glæðir allar vonir manns,
og hvar sem tárin kvika á kinn,
þau kyssir geislinn þinn.
Þú fyllir dalinn fuglasöng,
nú finnast ekki dægrin löng,
 og heim í sveitir sendirðu æ
úr suðri hlýjan blæ.

Þú frjóvgar, gleður, fæðir allt,
um fjöll og dali og klæðir allt,
og gangirðu undir, gerist kalt,
þá grætur þig líka allt.
Ó, blessuð vertu, sumarsól,
er sveipar gulli dal og hól
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðarvötnin blá.

Bjössi kvennagull
Hver ekur eins og ljón
Með aðra hönd á stýri?
:,:Bjössi á mjólkurbílnum.:,:
Hver stígur bensínið í botn í fyrsta gíri?
Bjössi á mjólkurbílnum,
Hann Bjössi kvennagull.

Við brúsapallinn bíður hans mær.
Æ, Bjössi keyptirðu þetta í gær.
Bjössi verður öldungis nær.
Æ, alveg gleymdi ég því.

Þér fer svo vel að vera svo æst.
Æ, vertu stillt ég man þetta næst.
Einn góðan koss, svo getum við sæst á ný.

Hann Bjössi kann á bíl og svanna tökin.
Við brúsapallinn fyrirgefst mörg sökin.
Hver ekur.
Syngjandi hér, syngjandi þar
Syngjandi hér, syngjandi þar,
syngjandi geng ég allsstaðar,
sí og æ,
æ oh sí,
aldrei fæ ég nóg af því.

Krúsilíus
Kannastu við köttinn minn?
Hann klókur er en besta skinn.
Hann er stærri en hestur
og stærri en hús.
Já, kötturinn minn heitir
 Krús – Krús – Krús-
Krúsilíus.

Hann er gulur og grænn og blár
Galdraköttur í húð og hár.
Og ég veit hvað hann syngur
og víst er það satt
að krúsilíus hann á köflóttan hatt.
Krúsilús.

Krúsilíus kynlegur er
og klórar oft í tærnar á mér.
Hann vill aldrei fisk
er með væl og pex
og segist bara vilja súkkulaðikex.
Krúsilíus.

Og ekki nennir hann að elta mýs
því alla daga vill hann rjómaís.
Hann er alltaf að stækka
en enginn það sér
því Krúsilíus býr í kollinum á mér.
Krúsilíus.



Vinátta
Allir þurfa að eiga vin,
Allir þurfa að eiga vin.
Leggjum núna hönd í hönd
Og hnýtum okkar vinarbönd.

Þegar bjátar eitthvað á
allt það segja vini má,
ýta sorgum öllum frá
og aftur gleði sinni ná.

Vinátta hún færir frið.
Friður bætir mannkynið.
Öðrum sýnum ást og trú
og eflum vináttuna nú.

Allir þurfa að eiga vin
allir þurfa að eiga vin.
leggjum núna hönd í hönd
og hnýtum okkar vinarbönd.

Tilfinningasöngurin
 
Ég er kræfur að byggja úr kubbum
og kann líka að tálga með hníf.
Ef ég fæ ekki ís verð ég alveg ær
og óður í hárið ég tæti og ríf.

Ég segi þér allt um hvernig mér líður.
Kannski mun ég hrópa
eða hvísla því að þér.
Ég segi þér allt um hvernig mér líður,
og heyrðu nú hvað ég segi þér.
Og hlustaðu vel á mig.

Mér finnst indælt að vera úti
með öðrum  að leika mér.
Og ég vel að klifra upp í klett
en kannski þó hræddur ef enginn sér.

Ég er glaður í góðu veðri.
Ég get ekki þolað hríð.
Ég hissa verð ef enginn hlustar á mig
hvernig sem ég læt og bíð.

Það er skemmtilegt að vera í skóla
en skammaður ég stundum er.
Þá verð ég leiður og mig langar heim
að læðast þegar enginn sér.
( Úr námsefninu Stig af stigi )



Snjallræðissöngurinn
Innst inn´í skógi, þar sem apahópur býr,
organdi krakki til mömmu sinnar flýr,
en apamamma segir: “Enga frekju hér!
Þú átt að bíða stilltur, þar til kemur að þér!”

:,: Ratir þú í vanda, þá reyndu að leysa hann:,:
og hættu svo að kalla, og hættu að bíta og slá,
heldur skaltu setjast og bíða og sjá.

Efst upp,  í fjöllum, þar sem úlfahópur býr,
organdi krakki til mömmu sinnar flýr,
en úlfamamma segir: “ þú átt að skipta jafnt,
svo elsku litla systir þín fái sinn skammt!”

Djúpt niðr´ í moldu, þar sem músahópur býr,
til mömmu sinnar organdi lítill ungi flýr,
en músamamma segir: “ Ef þú sjálfur heldur frið,
systkinin öll munu veita þér grið!”

Langt út´í fenjum, þar sem froskahópur býr,
frekjudallur lítill til mömmu sinnar snýr,
en froskamamma segir: “ Biddu að fyrirgefa þér,
svo friður góður ríki og vinátta hér!”
( Úr námsefninu Stig af stigi )



Slökunarsöngurinn
Ég þekkti litla stúlku,
hún var stríðin og þrjósk,
ég tók bara í höndina á henni og þá
hún hætti, svo rættist mín ósk.

:,: Drag andann djúpt,
og teldu upp að tíu,
þá rennur þér reiðin að nýju:,:

Ég þekkti drenginn litla,
hans lund var stirð og þrjósk,
ég tók bara í höndina á honum og þá
hann hætti, svo rættist mín ósk.

Þér léttir mjög í skapi
og þér líður miklu skár,
ef blessuð mamma blíðri hendi
burtu strýkur tár.

Ef einhver illa ögrar þér
með ertni, spé og háð,
að láta sem  þú sjáir ekki
sýnist besta ráð.
( Úr námsefninu Stig af stigi )

Fuglinn í fjörunni
Fuglinn í fjörunni,
hann heitir már,
silkibleik er húfan hans
og gulllitað hár.
Er sá fuglinn ekki smár,
bæði digur og fótahár,
á bakinu svartur, á bringunni grár,
bröltir hann oft í snörunni,
fuglinn í fjörunni.

Bullutröll
Trúir þú á tröllabullið?
Taktu nú eftir, hlustaðu´ á!
Fyrir löngu fóru á stjá
ferleg skrímsli með hausa þrjá.

Þau eru líka þursar kölluð,
þungbúin og leið að sjá,
herfilega heimsk, ó, já,
og hafa engu´að segja frá.

Bullutröll, bullutröll,
búa í stórri fjallahöll,
en fari þau um víðan völl
verða þau oft að steini.

Skessurnar í skessuleikjum
skoppa létt um dal og fjörð,
hendast yfir hæstu skörð
svo hristist bæði sjór og jörð.

Stólpakarlar stika yfir
stærstu jökla, fara geyst.
Heljarbjörg þeir hafa reist
og haugbúa úr viðjum leyst.

Bullutröll, bullutröll...

Ef þú heyrir óhljóð trölla
eru þau helst á þennan veg:
“Sklibba-lagga, skölluleg,
skodda-bagga völlubeg.
(Af geisladiskinum Bullutröll )



Bolludagur
Á bolludegi fer ég með bolluvönd á kreik.
Mér alltaf þykir gaman að iðka þennan leik.
Ég bolla og bolla á bossann á þér fast ég slæ
bolla og bolla og bollu í laun ég fæ.
Já bragðgóðar eru bollurnar, bollurnar, bollurnar.
Já bragðgóðar eru bollurnar húllum hæ.

Sprengidagur
Á sprengidegi er bumban að springa hreint á mér
Því magnið er ei smátt sem í magann á mér fer.
Af saltkjöti og baunum ég saðningu í magann fæ.
Af saltkjöti og baunum ég saddur verð og hlæ.
Já braðgóðar eru baunirnar, baunirnar, baunirnar.
Já bragðgóðar eru baunirnar húllum hæ.

Öskudagur
Á öskudegi fer ég með öskupoka af stað
og elti menn og konur sem ekki vita um það.
Hengi svo poka á hinn og þennan sem ég næ
lauma í poka, læðist burt og hlæ.
Svo dingla þarna pokarnir, pokarnir, pokarnir.
Svo dingla þeir þarna pokarnir húllum hæ.
 
Allir hlægja
Allir hlægja á öskudaginn
ó hve mér finnst gaman þá.
Hlaupa lítil börn um bæinn
bera poka til og frá.



Öskudagur
Upp er runninn öskudagur
ákaflega skýr og fagur
einn með poka ekki ragur
úti hljóma heims um ból
góðan daginn og gleðileg jól.
:: Úmba rassa::úmba rassasa hei!
:: Úmba rassa::úmba rassasa hei!

Siggi var úti
Siggi var úti með ærnar í haga
allar hann hafði þær suður í mó.
Smeykur um holtin var hann að vaga,
vissi hann, að lágfóta dældirnar smó.
::Ga, ga, ga kvað tófan á grjórti::
Gráum augunum trúi ég hún gjóti.
Aumingja Siggi hann þorir ekki heim.

Hani, krummi
Hani, krummi, hundur, svín,
hestur, mús, tittlingur;
galar, krunkar, geltir, hrín,
gneggjar, tístir, syngur.


Sussu Bína
Sussu Bína sussu Bína,
sussu Bína uss.
Besta litla Bína,
bráðum framtíð þína,
færðu að heyra, færðu að heyra,
farðu að sofa, uss.


 
Það er munur að vera hvalur
Það er munur að vera hvalur
og geta siglt um sjóinn
einsog skip, einsog skip, einsog skip einsog skip

Ég er stærsti hvalur í heimi
og ég syndi um með merkilegan svip,
merkissvip, merkissvip, merkissvip.

Alla fiska sem ég finn, hvar sem er í hafinu.
Alla fiska sem ég finn, hvar sem er í hafinu,
borða ég með munninum.

Ýsur og lýsur,
hámerar og vogmerar
skrápflúrur og kollúrur,
þyrsklinga og brislinga,
hina snúandi og smjúgandi
dansandi og glansandi,
ála, ála.
( Af geisladiskinum Eniga Meniga )

Litagleði
Græn eru laufin
og grasið sem grær.
Glóðin er rauð
og eldurinn skær.
Fífill og sóley
eru fagurgul að sjá.
Fjöllin og vötnin
og loftin eru blá.
Hvítur er svanur
sem syndir á tjörn.
Svartur er krummi
og öll hans börn.


Söngurinn hennar Siggu
Ég hitti litla dömu, í París var að hoppa
sippað getur lika, fer heim með rifna sokka.

Teiknar fínar myndir, býður mér að þiggja
eina af sér og eina af mömmu, skrifar undir Sigga.

Samt heilla hana fínir kjólar, þegar augun í þá rekur.
Með maskalit og púðri andlit sitt hún þekur.

Dansað getur líka tja, tja, tja og tangó.
Liðug eins og ormur, vinnur mig í limbó.

Hún á það til að hlægja, getur líka grátið.
En oftast brýst í gegnum tárin, sæta litla brosið.

Teiknar skrýtnar myndir, býður mér að þiggja eina af sér og eina af mömmu, skrifa undir Sigga.
 ( Bubbi Mortens )

Krumminn á skjánum
Krumminn á skjánum,
kallar hann inn:
“Gef mér bita af borði þínu,
bóndi minn!”
Bóndi svarar býsna reiður:
“Burtu farðu, krummi leiður.
Líst mér að þér lítill heiður,
ljótur ertu á tánum,
krumminn á skjánum.”


Sí ma ma ka
Sí ma ma ka/ við setjumst niður
Sí ma ma ka/ við setjumst niður
Rúka, rúka, rúka/ upp-niður
Sí ma ma ka/ við setjumst niður.

Tembeija, tembeija/göngum, göngum
Tembeija, tembeija/göngum, göngum
Rúka, rúka, rúka/ upp-niður
Sí ma ma ka/ við setjumst niður.

Jólalög

Adam átti syni sjö
Adam átti syni sjö
sjö syni átti Ádam.
Adam elskaði alla þá
og allir elskuðu Adam.
Hann sáði, hann sáði.

Hann klappaði saman lófunum
hann stappaði niður fótunum
hann ruggaði sér í lendunum
og snéri sér í hring

Í skóginum stóð kofi einn
Í skóginum stóð kofi einn
sat við gluggann jólasveinn,
þá kom lítið héraskinn
sem vildi komast inn.
Jólasveinn ég treysi´ á þig
veiðimaður skýtur mig.
Komdu litla héraskinn,
því ég er vinur þinn.

Jólasveinar einn og átta
Jólasveinar einn og átta
ofan komu úr fjöllunum.
Í fyrrakvöld þeir fóru að hátta
fundu hann Jón á Völlunum.
Andrés stóð þar utan gátta,
þeir ætluðu að færa hann tröllunum,
þá var hringt í Hólakirkju
öllum jólabjöllunum.


Jólasveinar ganga um gólf
Jólasveinar ganga um gólf
með gildan staf í hendi,
móðir þeirra sópar gólf
og hýðir þá með vendi.
:,:Uppi á stól stendur mín kanna,
níu nóttum fyrir jól
þá kem ég til manna:,:

Þá nýfæddur Jesú
Þá nýfæddur Jesú í jötunni lá
á jólunum fyrstu var dýrðlegt að sjá,
þá sveimuðu englar frá himninum hans
því hann var nú fæddur í líkingu manns.

Þeir sungu "hallelúja" með hátíðarbrag,
"nú hlotnast guðsbörnum friður í dag",
og fagnandi hirðarnir fengu að sjá
hvar frelsarinn okkar í jötunni lá.

Ég bið þig, ó Drottinn, að dvelja mér hjá,
að dýrðina þína ég fái að sjá,
ó blessa þú, Jesú, öll börnin þín hér,
að búa þau fái á himnum með þér.



Bráðum koma blessuð jólin
Bráðum koma blessuð jólin
börnin fara að hlakka til.
Allir fá þá eitthvað fallegt
í það minnsta kerti´ og spil.

Hvað það verður veit nú enginn,
vandi er um slíkt að spá.
En eitt er víst að alltaf verður
ákaflega gaman þá.

Máske þú fáir menn úr tini,
máske líka þetta kver.
Við skulum bíða og sjá hvað setur
seinna vitnast hvernig fer.

En ef þú skyldir eignast kverið,
ætlar það að biðja þig
að fletta hægt og fara alltaf
fjaskalega vel með sig.

Göngum við í kringum
Göngum við í kringum einiberjarunn,
einiberjarunn, einiberjarunn.
Göngum við í kringum einiberjarunn,
snemma á mánudagsmorgni.

Svona gerum við er við þvoum okkar þvott,
þvoum okkar þvott, þvoum okkar þvott,
svona gerum við þegar við þvoum okkar þvott,
snemma á mánudagsmorgni.

Þriðjudagur: Vindum okkar þvott
Miðvikudagur: Hengjum okkar þvott
Fimmtudagur: Teygjum okkar þvott
Föstudagsmorgun: Straujum okkar þvott
Laugardagsmorgun: Skúrum okkar gólf
Sunnudagsmorgun: Greiðum okkar hár
Seint á Sunnudagsm: Göngum kirkjugólf

Gekk ég yfir sjó og land
Gekk ég yfir sjó og land
og hitti þar einn gamlan mann,
spurði hann og sagði svo:
Hvar áttu heima?
Ég á heima á Klapplandi, Klapplandi,
Klapplandi.
Ég á heima á Klapplandi,
Klapplandinu góða.
(Stapplandi, Grátlandi, Hlælandi,
Hvísllandi og Íslandi).

Það á að gefa börnum brauð
Það á að gefa börnum brauð
að bíta í á jólunum,
kertaljós og klæðin rauð,
svo komist þau úr bólunum,.
Væna flís af feitum sauð,
sem fjalla gekk á hólunum.
Nú er hún gamla Grýla dauð,
gafst hún upp á rólunum.

Jólin alls staðar
Jólin, jólin alls staðar
með jólagleði og gjafirnar.
Börnin stóreyg standa hjá
og stara jólaljósin á.
Jólaklukka boðskap ber
um bjarta framtíð handa þér
og brátt á himni hækkar sól,
við höldum heilög jól.

Við kveikjum einu kerti á...
Við kveikjum einu kerti á,
Hans koma nálgast fer,
sem fyrstu jól í jötu lá
og jesúbarnið er.

Við kveikjum tveimur kertum á
og komu bíðum hans.
Því Drottin sjálfur soninn þá
mun senda´ í líking manns.

Við kveikjum þremur kertum á
því konungs beðið er,
þótt Jesús sjálfur jötu og strá
á jólum kysi sér.

Við kveikjum fjórum kertum á;
brátt kemur gesturinn
og allar þjóðir þurfa að sjá
að það er frelsarinn.




Ég sá mömmu kyssa jólasvein
Ég sá mömmu kyssa jólasvein,
við jólatréð í stofunni í gær.
Ég læddist létt á tá
til að líta gjafir á,
hún hélt ég væri steinsofandi
Stínu dúkku hjá,
og ég sá mömmu kitla jólasvein
og jólasveinnin út um skeggið hlær.
Já sá hefði hlegið með
hann pabbi minn hefð'ann séð
mömmu kyssa jólasvein í gær.

Skín í rauðar skotthúfur
Skín í rauðar skotthúfur
skuggalangan daginn,
jólasveinar sækja að
sjást um allan bæinn.
Ljúf í geði leika sér
lítil börn í desember,
inn í frið' og ró, út´í frost og snjó
því að brátt koma björtu jólin,
bráðum koma jólin.

Uppi á lofti, inni í skáp
eru jólapakkar,
titra öll af tilhlökkun
tindilfættir krakkar.
Komi jólakötturinn
kemst hann ekki´ í bæinn inn,
inn' í frið og ró, út´ í frost og snjó,
því að brátt koma björtu jólin,
bráðum koma jólin.


Nú skal segja
Nú skal segja, nú skal segja
hvernig litlar telpur gera:
Vagga brúðu, vagga brúðu
-og svo snúa þær sér í hring.

 Nú skal segja, nú skal segja
hvernig litlir drengir gera:
Sparka bolta, sparka bolta
-og svo snúa þeir sér í hring.

 Nú skal segja, nú skal segja
hvernig ungar stúlkur gera:
Þær sig hneigja, þær sig hneigja
-og svo snúa þær sér í hring.

 Nú skal segja, nú skal segja
hvernig ungir piltar gera:
Taka ofan, taka ofan
-og svo snúa þeir sér í hring.

 Nú skal segja, nú skal segja
hvernig gamlar konur gera:
Prjóna sokka, prjóna sokka
-og svo snúa þær sér í hring.
 Nú skal segja, nú skal segja
hvernig gamlir karlar gera:
Taka í nefið, taka í nefið
-og svo snúa þeir sér í hring.
AAAtsjúú!!!


Jólasveininn minn
Jólasveinninn minn,jólasveinninn minn
ætlar að koma í dagm með poka af gjöfum
og segja sögur og syngja jólalag
það verður gaman þegar hann kemur þá svo hátíðlegt er
Jólasveinninn minn,
káti karlinn minn
kemur með jólin með sér

Jólasveinninn minn,,jólasveinninn minn
ætlar að koma í kvöld, ofan af fjöllum með ærslum og köllum
hann labbar um um holtin köld.
Hann er svo góður og blíður við börnin bæði fátæk og rík.
Enginn lendir íjólakettinum
allir fá nýja flík.

Jólasveinninn minn, ,jólasveinninn minn
arkar um holtin köld
Af því að litla jólabarnið
á afmæli í kvöld.
Ró í hjarta, frið og fögnuð
flestir öðlast þá.
Jólasveinninn minn,
komdu karlinn minn
kætast þá börnin smá.




Fimm mínútur í jól
Er  brúða eða bíll,bók eða lest?
Þekkir einhver hér þennan jólagest
sem læðist um með sekk lætur ofaní  skó
meðan lítil börnin sofa vært í ró.

Hvíldu höfuð hljótt.
Hlustaðu það kemur senn jólanótt.
Úti er snjór, úti er kalt
úti hljóma jólabjöllur yfir allt.
Er það brúða eða bíll,
bók eða lest.

Klukkurnar dinga-linga-ling
Klukkurnar dinga-linga-ling,
klingja um jól.
Börnin safnast saman,
sungin jólavísa,
komið er að kveldi,
kertin jóla lýsa.
Klukkurnar dinga-linga-ling
klinga um jól.

Klukkurnar dinga-linga-ling
klingja um jól.
Loftið fyllist friði,
fagra heyrum óma,
inn um opinn gluggann
allar klukkur hljóma.
Klukkurnar dinga-linga-ling
klinga um jól.


Bjart er yfir Betlehem
Bjart er yfir Betlehem
blikar jólastjarna.
Stjarnan mín og stjarnan þín,
stjarna allra barna.
Var hún áður vitringum
vegaljósið skæra.
Barn í jötu borið var,
barnið ljúfa kæra.

Víða höfðu vitringar
vegi kannað hljóðir
fundið sínum ferðum á
fjöldamargar þjóðir.
Barst þeim allt frá Betlehem
birtan undur skæra.

Barn í jötu borið var,
barnið ljúfa kæra.
Barni gjafir báru þeir.
Blítt þá englar sungu.
Lausnaranum lýstu þeir,
lofgjörð drottni sungu.
Bjart er yfir Betlehem
blikar jólastjarna,
Stjarnan mín og stjarnan þín
stjarna allra barna.




Skreytum hús
Skreytum hús með greinum grænum,
tra la la la la la la la la.
Gleði ríkja skal í bænum,
tra la la la la la la la la.
Tendrum senn á trénu bjarta,
tra la la la la la la la la.
Tendrum jól í hverju hjarta
tra la la la la la la la la.

Ungir, gamlir - allir syngja:
Tra la la la la la la la la.
Engar sorgir hugann þyngja,
tra la la la la la la la la.
Jólabjöllur blíðar kalla,
tra la la la la la la la la.
boða frið um veröld alla,
tra la la la la la la la la!

Magga litla og jólin hennar
Babbi segir, babbi segir:
"Bráðum koma dýrðleg jól".
Mamma segir, mamma segir:
"Magga fær þá nýjan kjól".
Hæ, hæ, ég hlakka til,
hann að fá og gjafirnar.
Bjart ljós og barnaspil,
borða sætar lummurnar.

 

Nú er Gunna á nýju skónum
Nú er Gunna á nýju skónum,
nú eru´að koma jól.
Siggi er á síðum buxum,
Solla´á bláum kjól.
:/: Solla á bláum kjól :/:
Siggi er á síðum buxum,
Solla´á bláum kjól.

Mamma er enn í eldhúsinu
eitthvað að fást við mat.
Indæla steik hún er að færa
upp á stærðar fat.

Pabbi enn í ógnarbasli
á með flibbann sinn.
"Fljótur, Siggi, finndu snöggvast
flibbahnappinn minn".

Kisu er eitthvað órótt líka,
út fer brokkandi.
Ilmurinn úr eldhúsinu
er svo lokkandi.

Jólatréð í stofu stendur,
stjörnuna glampar á.
Kertin standa á grænum greinum,
gul og rauð og blá.

Loksins hringja kirkjuklukkur
kvöldsins helgi inn.
Á aftansöng í útvarpinu
allir hlusta um sinn.

Snæfinnur snjókarl
Snæfinnur snjókarl
var með snjáðan pípuhatt,
gekk í gömlum skóm
og með grófum róm
gat hann talað, rétt og hratt.
"Snæfinnur snjókarl!
Bara sniðugt ævintýr,"
segja margir menn,
en við munum enn
hve hann mildur var og hýr.

En galdrar voru geymdir
í gömlu skónum hans:
Er fékk hann þá á fætur sér
fór hann óðara í dans.
Já, Snæfinnur snjókarl,
hann var snar að lifna við,
og í leik sér brá æði léttur þá,
uns hann leit í sólskinið
 
Söngur jólasveinanna
Úti er alltaf að snjóa.
Því komið er að jólunum
og kólnað fer í pólunum.
En sussum og sussum og róa,
ekki gráta elskan mín,
þó það vanti vítamín.
ávexti eigum við nóga.
Handa litlu krökkunum,
þú færð í magann þinn mjóa
melónur og vínber fín.
Þótt kinnin þín litla
sé kannski soldið köld og blá,
áttu samt vini sem aldrei bregðast af ávöstunum skuluð þér nú þekkja þá.
´Sussum og sussum og róa
ekki gráta elskan mín,
þó það vanti vítamín.
Þú færð í magann þinn mjóa
melónur og vínber fín.

Hvít jól
Ég man þau jólin, mild og góð
er mjallhvít jörð í ljóma stóð.
Stöfum stjörnum bláum,
frá himni háum
í fjarska kirkjuklukknahljóm.
Ég man þau jól, hinn milda frið
á mínum jólakortum bið
að æfinlega eignist þið
heiða daga, helgan jólafrið.

Meiri snjó
Er lægst er á lofti sólin
þá loksins koma jólin
við fögnum í friði og ró
meiri snjó, meiri snjó meiri snjó.

Það gleðst allur krakkakórinn
er kemur jólasnjórinn
og æskan fær aldrei nóg,
meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó

Það er barnanna besta stund
þegar byrjar að snjóa á grund.
Úti´ á flötinn fæðist hratt,
feiknar snjókarl með nef og með hatt.

Svo leggjast öll börn í bólin
því bráðum koma jólin.
Þau fagna í friði og ró,
meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó

Brátt koma jólin
Brátt koma jólin
börnin syngja öll
brátt koma jólin
björt í koti og höll.
Kveiktu þá á kerti þínu
kveiki ég þá strax á mínu
látum ljós frá þeim
lýsa dimman geim.