Forsíða Prenta Veftré Leita
Leikurinn er kjarni uppeldisstarfsins í leikskólanum. Rannsóknir sýna að börn á leikskólaaldri læra mest og best í leik. Leikurinn er jafnframt helsta kennslutæki leikskólakennarans. Á Hjallatúni er leikurinn hinn frjálsi sjálfsprottni leikur kjarninn í öllu starfi og er honum gefinn góður tími. Leikurinn er lífstjáning barnsins og í gegnum hann virkja börnin reynslu sína og áhuga. Lögð er áhersla á að skipulag og búnaður stuðli að fjölbreyttum leik barnanna, vekji forvitni þeirra og virkni. Í skólanámskrá Hjalltúns er hægt að nálgast allar upplýsingar um leikskólastarfið en ef þú ert að leita að ákveðnum þáttum þá getur verið að þú finni þá á veftrénu hér til hliðar.