|
Foreldrafélag Samkvæmt Aðalnámsskrá leikskóla frá 1999 skal við sérhvern leikskóla starfa foreldrafélag. Misjafnt er hvaða markmið þessi félög setja sér. Landssamtök foreldrafélaga styðja við bakið á foreldrafélögum og veita ýmsar upplýsingar. Foreldrafélag er starfandi við leikskólann og var það stofnað í maí 2001. Allir foreldrar sem eiga börn á Hjallatúni verða sjálfkrafa félagar í félaginu, en nokkrir foreldrar skipa stjórn þess ár hvert. Félagið stendur fyrir ýmsum uppákomum eins og piparkökummálun í nóvember og leikrit í leikskólann. Reglur foreldrafélagsins er hægt að fá hjá leikskólastjóra. Árgjald félagsins er kr. 3000 sem innheimt er með gíróseðlum haust hvert. Árgjaldið fer óskert í að greiða niður ýmsa viðburði á vegum félagsins. Einnig hefur félagið styrkt leikskólann t.d. með því að greiða rútuferðir, kaupa skemmtiatriði á sumarhátíð, gefa leikföng og margt fleira. Við hvetjum því alla til að greiða árgjaldið.
Aðalfundur foreldrafélags Hjallatúns
Ný stjórn tók við.
Stjórn Foreldrafélags Hjallatúns veturinn 2011 - 2012
Jóhanna Helgadóttir, Formaður
Erna Ósk Steinarsdóttir, Varaformaður
Ragnhildur Ingólfsdóttir, Gjaldkeri
Margrét Lára Lismonde-Jaune, Ritari
Anna S. Guðmundsdóttir, meðstjórnandi
María Ósk Kjartansdóttir, meðstjórnandi
Ewa Wyohe, meðstjórnandi
Aldís Ása Guðnadóttir, meðstjórnandi
Ólöf og Ingibjörg, Fulltrúar Hjallatúns
|