Forsíða Prenta Veftré Leita

Fréttir frá Varmaland

26. mars 2012

Nýjar myndir fyrir febrúar og mars eru komnar í myndabanka Varmalands.

Tíminn líður hratt þegar gaman er :-) Þannig upplifum við leikskólastarfið hér á Hjallatúni. Alltaf nóg fyrir stafni hjá börnum og kennurum. Þorrinn er liðinn með hans föstu venjum sem vöktu mikla lukku í leikskólanum. Góa tók við með hennar hætti og nú er kominn einmánuður sem er síðasti mánuður vetrar. Greinilega má finna vor í lofti og hafa komið nokkrir ágætis útivistardagar. Vonandi fáum við mikið af þeim því börnin vilja vera úti. Páskarnir eru á næsta leyti og þá tekur leikskólinn á sig lit af þeim, m.a. verður farið í páskaeggjaleit :-) Foreldrasamtölum er lokið og tókust þau vel.

18. janúar 2012

Gleðilegt ár! Eftir rólega jólatíð erum við komin á fullt í leikskólastarfinu á nýja árinu. Börnin hafa þroskast og dafnað mikið frá því í haust og fer dugnaður þeirra vaxandi. Veturinn hefur verið frekar veðrasamur með miklum snjó og lægðum. Það hafa því verið nokkuð margir dagar þar sem lítil eða engin útivera var í boði. Það fer vonandi batnandi með hækkandi sól því börnin á Hjallatúni eru flest áhugasöm á útiveru enda svo gott að leika sér úti eða fara í vettvangsferðir. Brátt gengur Þorrinn í garð og þá hefjast ýmsar venjur eins og að heimsækja Stekkjarkot, skoða gamlar vísur og hluti. Þorrablót verður 27. janúar og þá verður einnig Þorralandafundur þar sem Þorri konungur og Kári koma og skemmta börnunum.